Bergur Ebbi opnar viðburðinn á hugvekju um auglýsingar, miðla og framtíðina.

Uppbókað er á viðburðinn

Smásölumiðlun (e. retail media) hefur á undanförnum árum notið aukinna vinsælda og er nú einn hraðast vaxandi auglýsingamiðill heims. Hagar bjóða samstarfsaðilum, sérfræðingum í smásölu, sölu og markaðssetningu á viðburð þar sem farið verður yfir nýjar leiðir til að miðla skilaboðum til viðskiptavina í verslun. Fjallað verður um hvernig auglýsingar í verslun, þar sem kaupin eiga sér stað, skapa tækifæri fyrir vörumerki til vaxtar og styrkja samtalið við neytendur.
Einn helsti sérfræðingur Norðurlanda á sviði smásölumiðlunar deilir reynslu sinni og kynnir árangur vörumerkja af notkun auglýsingamiðla í verslunum. Einnig munu sérfræðingar í smásölu fjalla um þessa nýju leið í markaðssetningu og hvernig samskipti við viðskiptavini og aukinn sýnileiki geta haft áhrif á sölu.
Að lokum taka reynslumiklir aðilar úr smásölu- og auglýsingageiranum þátt í umræðum og velta fyrir sér hvernig auglýsendur geta nýtt auglýsingamiðla í verslun til að ná betra samtali við viðskiptavini, á réttum stað og á réttum tíma.
Takmarkað sætaframboð er á viðburðinn og því hvetjum við áhugasama til að skrá sig og tryggja sér sæti.
Bergur Ebbi opnar viðburðinn á hugvekju um auglýsingar, miðla og framtíðina.

Finnur fer yfir í erindi sínu hvað smásölumiðlun (e. retail media) er og hvernig þjónustan hefur þróast á alþjóðamörkuðum. Hann fjallar um tækifærin fyrir birgja að auka sýnileika vörumerkja og hvernig auglýsingar í verslun geta styrkt samstarf birgja og smásala enn frekar og skapað tækifæri til vaxtar.

Matas Group er leiðandi smásölufyrirtæki á Norðurlöndum á sviði fegurðar og vellíðunar og þjónar milljónum viðskiptavina í gegnum verslanir sínar og stafræna miðla. Kathrine Rønhof Karstensen er yfirmaður smásölumiðlunar (e. retail media) hjá Matas. Hún hefur gegnt lykilhlutverki við að byggja upp heildstæða miðlaþjónustu sem spannar allt markaðsferlið (e.funnel) og er þjónustan drifin áfram af gögnum og endurgjöf viðskiptavina. Í þessu erindi segir hún frá þróuninni á auglýsingasölu hjá Matas frá árinu 2019 til dagsins í dag. Hún segir frá því hvernig stafrænar lausnir hafa gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu þjónustunnar og hvernig hægt er að bjóða lausnir sem ná yfir allt markaðsferlið. Einnig deilir hún með gestum árangurssögum þekktra vörumerkja í smásölu og útskýrir hvers vegna þau hafa náð auknum vexti með þjónustu Matas.

Sesselía kynnir nýja þjónustu Haga miðla og fer yfir markaðslegu tækifærin fyrir auglýsendur sem vilja auka sýnileika þar sem að kaupákvarðanir eru teknar. Hún kynnir þá auglýsingamiðla sem Hagar miðlar bjóða ásamt því að fara yfir árangur viðskiptavina sem hafa nýtt sér miðlana.





Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar og tækifæri fyrir spjall.
Áhugasamir um þjónustu Haga miðla geta sent okkur fyrirspurn og við svörum hratt og vel
Senda fyrirspurn